Seldi dóp á virkum dögum og djammaði um helgar

Rapparinn Birgir Hákon er gestur Sölva Tryggvasonar.
Rapparinn Birgir Hákon er gestur Sölva Tryggvasonar. Ljósmynd/YouTube

Rapparinn Birgir Hákon er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Hann vakti mikla athygli þegar hann kom fram á sjónarsviðið með sannar og hispurslausar lýsingar og myndbönd á íslenskum undirheimum og lífsstíl sem fæstir þekkja vel. Eftir að hafa verið djúpt sokkinn í glæpi og neyslu sneri Birgir við blaðinu. Í þættinum fer hann yfir sögu sína. 

„Ég átti flókna æsku og það gekk mikið á. Pabbi minn og bræður mínir voru í mikilli neyslu og það mótaði mínar hugmyndir um lífið, þó að ég hafi kannski ekki fattað það. Ég var 5 ára gamall þegar ég sá í fyrsta skipti mjög alvarlegt ofbeldi og það sat lengi í mér og er í raun ein mín fyrsta minning. Svo var ég lagður í mikið einelti þegar ég var í grunnskóla og ég horfði á bræður mína sem voru inn og út úr fangelsi og beittu fólk ofbeldi og það kom enginn svona fram við þá, þannig að mér leið eins og ég yrði að vera meira eins og þeir. Af því að bræður mínir og pabbi voru í neyslu og oft ekki á staðnum leið mér eins og ég yrði að passa upp á heimilið frá því ég var mjög ungur. Í rauninni leið mér svoleiðis frá því ég man eftir mér. Svo sótti ég eðlilega ekki í góðan félagsskap og ég man að ég ætlaði aldrei að drekka, en flestir í kringum mig voru byrjaði á því 12 ára, þannig að mér fannst ég mjög seinn að byrja 14 ára.  Þaðan man ég að ég vildi bara komast í það ástand sem oftast.“

Þegar Birgir var að byrja í tónlistinni sagði fólk í kringum hann að hann yrði þá að hætta öllum glæpum, af því að hann væri annars að vekja of mikla athygli á sér. 

„Frændi minn sagði við mig að ég gæti ekki bæði gert tónlist og verið í því að selja eiturlyf og fremja glæpi, en ég var ekki sammála því og ætlaði bara að gera bæði. Ég var nokkur ár í því að selja eiturlyf og það var fullt af peningum í því. Ég var mest með 10 milljónir á mér í reiðufé. Ég seldi á virkum dögum, en djammaði um helgar í ákveðinn tíma, en svo tók neyslan yfir og rústaði lífi mínu og öllu í kringum mig. Ég var á hraðri leið inn á Litla Hraun þegar ég loksins hætti. Ég gerði nokkrar tilraunir þar sem ég náði að vera edrú í viku eða nokkrar vikur, en það tók tíma að verða loksins í alvöru edrú. Það er flókið að hætta þegar allur félagsskapurinn manns og tengslin eru inni í þessum heimi og hafa verið frá því að maður man eftir sér.“

Það sem breytti öllu fyrir Birgi var þegar mamma hans greindist með krabbamein og sama kvöld og hann fékk fréttirnar lenti honum og besta vini hans saman og Birgir slasaði vin sinn illa. 

„Ég var ekki búinn að vera í neinu sambandi við hana og ég var bara ekki búinn að vera í neinum tengslum við raunveruleikann lengi og svo slasaði ég líka besta vin minn mjög illa sama kvöld og ég fékk fréttirnar af mömmu. Ég var búinn að vera vakandi í 4 daga og það dó eitthvað inni í mér eftir þetta kvöld,” segir Birgir, sem á erfitt með að rifja upp atvikið þegar hann slasaði vin sinn.

„Þetta er minn allra besti vinur og við fórum að rífast og svo fór hann út og kom svo aftur inn og dinglaði og réðist á mig og það gerðist í þrígang þar til ég réðist að honum með hníf. Það urðu mikil átök og við rúlluðum niður stiga og svo ranka ég við mér þegar ég sé að hann er kominn með hníf djúpt inn í bakið. Ég hef aldrei verið jafnhræddur á ævi minni eins og á þessu augnabliki. Þessi drengur er eins og bróðir minn og mamma mín kallar hann son sinn, þannig að þetta var bara hræðilegt. Ef þú hefðir spurt mig viku fyrir þetta hvort ég væri að fara að hætta lífsstílnum mínum hefði ég hlegið að þér, en þarna gerðist eitthvað innra með mér sem breytti öllu.“

Í þættinum ræða Sölvi og Birgir um rappið, glæpaheiminn á Íslandi, nýjan lífsstíl Birgis og margt fleira.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is og horfa á hann í heild sinni á YouTube: 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál