Elskar að vera ofurútgáfan af sjálfri sér

„Kannski er það þess vegna sem ég elska keppni svona mikið. Mér líður þá eins og ofur-mér,“ segir Katrín Tanja Davíðsdóttir sem tvisvar hefur hlotið titilinn Fittest Woman on Earth eða Hraustasta kona heims og situr nú í öðru sæti á þeim heimslista.

Katrín Tanja er ekki bara næsti gestur Loga Bergmanns í viðtalsþáttunum Með Loga heldur líka yngsti gestur hans til þessa en hún er 27 ára gömul. 

Þau fara yfir magnaðan feril þessarar ungu konu sem lært hefur að takast á við ýmsar áskoranir í lífinu og nýta sér þær til að ná árangri sem fæst okkar munu nokkurn tíma ná; að verða best í heimi. 

Þátturinn kemur í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudag og er einnig sýndur í opinni dagskrá kl. 20.00 sama dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál