Leikkonan Julia Roberts hefur frá árinu 2007 fengið aðstoð við að klæða sig upp á fyrir rauða dregilinn frá stílistanum og vinkonu sinni Elizabeth Stewart.
Stewart er vinsæll stílisti og starfaði hún í ein tólf ár í tískudeild New York Times-tímaritsins og í tíu ár hjá W-tímaritinu, meðal annars í París. Hún hefur unnið með frægustu leikurum heims og aðstoðað stjörnurnar við að klæða sig upp á fyrir rauða dregilinn.
Roberts og Stewart þykja einstaklega líkar útlits en vinskapur þeirra hefur þróast og orðið meiri með árunum. Þær eru ekki systur þótt Roberts eigi það til að kynna hana sem tvíburasystur sína. Enda eru þær sláandi líkar í útliti.