Seldi trúlofunarhringinn fyrir 12 milljónir

Shanna Moakler fyrrum eiginkona Travis Barkers.
Shanna Moakler fyrrum eiginkona Travis Barkers. Ljósmynd/Instagram

Shanna Moakler, fyrrum eiginkona tónlistarmannsins Travis Barker, seldi trúlofunarhringinn sem hann gaf henni á sínum tíma. Hringurinn fór á 96.000 dollara eða á 12 milljónir íslenskar krónur. Hún seldi hann á uppboði og voru alls 17 boð í hringinn. Þetta gerði hún eftir að Barker giftist raunveruleikastjörnunni Kourtney Kardashian. 

Moakler er fyrrum fegurðardróttning og var kosin ungfrú USA árið 1995. Travis og Moakler voru gift frá 2004 til 2008. Þau eiga saman soninn Landon sem er 18 ára og dótturina Alabama sem er 16 ára. Alabama var brúðarmey fyrir Kardashian en bæði börnin tóku þátt í brúðkaupi pabba síns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál