Instagram: „Gellur elska náttúrulaugar“

Samsett mynd

Það má með sanni segja að ástin hafi verið í forgrunni þessa vikuna í júlí en margir lögðu leið sína í brúðkaupsveislur um helgina. Tónlistarmaðurinn Helgi Sæmundur og Kolfinna Kristínardóttir gengu í hjónaband á Siglufirði um helgina og var öllu tjaldað til. Sjóböðin í Hvammsvík opnuðu á laugardag en á föstudagskvöldinu buðu Skúli Mogensen og Gríma Thorarensen í partí í böðunum. 

Rapparinn Emmsjé Gauti var á meðal gesta í brúðkaupi þeirra Helga og Kolfinnu á Siglufirði. 

Dansarinn og viðskiptafræðingurinn Tara Sif Birgisdóttir og Elfar Elí Schweitz Jakobsson líka. 

Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir gerði allt vitlaust á listahátíðinni LungA.

View this post on Instagram

A post shared by SVALA (@svalakali)

Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson nutu lífsins í Barselóna á Spáni í síðustu viku. 

Tiktok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir nýtur sólarinnar í Pula í Króatíu. 

Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge og vinahópur hennar skipulögðu golfmót um helgina og fóru Pattra og Birgitta Líf Björnsdóttir með sigur af hólmi. 

View this post on Instagram

A post shared by Pattra S (@trendpattra)

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson fór með fjölskylduna í ferðalag til Færeyja. 

Tónlistarmaðurinn Ágúst Bent Sigbertsson nartaði í krabba.

View this post on Instagram

A post shared by Ágúst Bent (@agustbent)

Sumarfríið er handan hornsins hjá Rúrik Gíslasyni, fyrrverandi fótboltakappa og dansmeistara.

Heilsumarkþjálfinn Hera Gísladóttir hafði það gott á Akureyri með fjölskyldunni. 

Alþingismaðurinn Berglind Ósk Gumundsdóttir og kærasti hennar Daníel Matthíasson brugðu undir sig betri fætinum og fóru í brúðkaup. 

Leikkonan og flugfreyjan Íris Tanja Flygenring dansaði með hljómsveitinni Hatara í Lundúnum á Bretlandi. 

Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir birti sundbolamynd af sér í Reykjadal. 

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Lína Birgitta Sigurðardóttir og kærasti hennar, Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor, fögnuðu því að sólgleraugnalína þeirra, Moxen Eyewear fór í sölu um helgina. Lína og Gummi ræddu einmitt um sólgleraugun í viðtal við Smartland um helgina. 

Dansarinn Ástrós Traustadóttir birti fallega mynd af sér í Skógarböðunum. 

Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir birti fallegar myndir af sér. 

Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar, handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson, fóru í barnlausa hjónaferð til Spánar. Þau neyddust þó til að taka yngsta barn sitt með, enda er það enn í mömmumaga.

Tónlistarkonan Selma Björnsdóttir og leikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir voru veislustjórar um helgina. 

View this post on Instagram

A post shared by Selmabjorns (@selmabjorns)

Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir, eigandi Maika'i, klæddi sig upp fyrir skemmtilegt kvöld. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, keypti fyrsta bjórinn sem seldur var yfir borðið í Smiðjunni í Vík í Mýrdal. 

Anna Margrét Gunnarsdóttir, verkerkefnastjóri á sviði samskipta hjá H&M Group í Stokkhólmi í Svíþjóð, fagnaði 35 hringjum í kringum sólina. 

Tónlistarkonan Birgitta Haukdal og eiginmaður hennar Benedikt Einarsson gengu Fimmvörðuhálsinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál