Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir nuddari og snyrtifræðingur og Sigurjón Kjartansson handritshöfundur og skemmtikraftur giftu sig heima í stofu á laugardaginn var. Sigurjón greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og er þakklátur fyrir að hafa fundið svona góðan lífsförunaut.
Smartland sagði frá því í byrjun árs 2021 að þau hefðu hnotið um hvort annað. Nú er búið að taka sambandið upp á næsta stig með því að ganga í hjónaband. Hjónin hafa komið sér vel fyrir á fallegum stað á Selfossi.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ráðahaginn!