Lína og Gummi ástfangin í 3 ár

Gummi Kíró og Lína Birgitta Sigurðardóttir eru búin að vera …
Gummi Kíró og Lína Birgitta Sigurðardóttir eru búin að vera saman í 3 ár. Ljósmynd/Arnór Traustason

Athafnaparið Lína Birgitta Sigurðardóttir og Guðmundur Birkir Pálmason er búið að vera saman í þrjú ár. Parið fagnaði sambandsafmæli sínu um helgina og birtu þau fallegar myndir af sér saman. 

Fyrst byrjaði að fréttast af sambandi parsins í febrúar árið 2020 þegar þau fóru saman til Lundúna. Lína og Guðmundur, gjarnan kallaður Gummi kíró, hafa verið dugleg að ferðast saman þessi þrjú ár sem þau hafa verið saman. 

Þau hafa til dæmis heimsótt París, Lundúnir, Berlín, Kaupmannahöfn, Stokkhólm og auðvitað Tenerife saman.

Gummi fór svo á skeljarnar í borg ástarinnar, París, fyrr í haust og bað Línu að giftast sér.

Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál