Telur birtingu hljóðbrotsins sjálfstætt brot

Lögmaður konunnar sendi áhrifavaldinum Helga Ómarssyni skilaboð eftir að hann …
Lögmaður konunnar sendi áhrifavaldinum Helga Ómarssyni skilaboð eftir að hann deildi umræddu hljóðbroti í story hjá sér á Instagram. Samsett mynd

Lögmaður konu, sem höfðað hefur skaðabótamál gegn Eddu Falak, telur endurbirtingu á tilteknu hljóðbroti úr þáttum Eddu vera sjálfstætt brot sem leitt geti til refsi- og bótaábyrgðar hjá þeim sem endurbirtir hljóðbrotið. 

Lögmaður konunnar sendi áhrifavaldinum Helga Ómarssyni skilaboð eftir að hann deildi umræddu hljóðbroti á Instagram. Helgi endurbirti svo skilaboð lögmannsins hjá sér. 

Krefst milljóna af Eddu

Konan er móðir konu sem fór í viðtal hjá Eddu Falak á síðasta ári. Í þættinum var spilað hljóðbrot af samskiptum mæðgnanna og því deilt á samfélagsmiðlum þáttanna sömuleiðis.

Telur konan að birting þess sé brot á friðhelgi einkalífs hennar og að samræður þeirra séu teknar úr samhengi. 

Fer hún fram á fimm milljónir króna í miskabætur frá Eddu Falak vegna birtingarinnar, en hefur ekki farið fram á við hana að það verði tekið út úr viðtalinu eða samfélagsmiðlum. 

Helgi Ómars tjáði sig um málið í gær og gagnrýndi harðlega málarekstur konunnar gegn Eddu.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál