Instagram: Í læknisleik með Gumma kíró

Hafdís Björg Kristjánsdóttir, Gummi kíró, Tómas Guðbjartsson og Camilla Rut …
Hafdís Björg Kristjánsdóttir, Gummi kíró, Tómas Guðbjartsson og Camilla Rut Rúnarsdóttir komu öll við sögu á Instagram þessa vikuna. Ljósmynd/Samsett

Fólkið á Instagram lét haustið sem geisar um þessar mundir ekki stoppa sig. Það skemmti sér eins og enginn væri morgundagurinn. Á meðan Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari fór út að borða með Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni, Kleina, klæddi Gummi kíró sig upp eins og læknir. 

Í læknisleik!

Gummi kíró klæddi sig upp í læknaföt og lét mynda sig með Tómasi Guðbjartsyni hjartalækni. 

Klæddi sig upp á!

Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari kann að njóta lífsins! 

View this post on Instagram

A post shared by Hafdís Björg (@hafdisbk)

Með forseta Frakklands á Þingvöllum!

Dúi Landmark upplýsingafulltrúi fór á Þingvelli eldsnemma um morgun með Macron Frakklandsforseta. 

Tilbúin í sumarið! 

Lilja Gísladóttir er andlit Factori sem er verslun sem selur föt í öllum stærðum og gerðum. Hér er hún í bleikum kjól og tilbúin í sumarið. 

Nýtur óléttunnar!

Förðunarmeistarinn Ingunn Sigurðardóttir mun von bráðar eignast frumburð sinn. 

View this post on Instagram

A post shared by Ingunn Sigurdar (@ingunnsig)

Tvö ár!!!

Rúrik Gíslason rifjar upp að það eru tvö ár síðan hann sló í gegn á dansgólfinu. 

Í Eurovision-fíling!

Árný Fjóla Ásmundsdóttir tónlistarmaður var að sjálfsögðu stödd á Eurovison og elskaði það. 

Snyrtibuddan brást!

Camilla Rut Rúnarsdóttir segist ekki ánægð með hvernig snyrtibuddan hafi brugðist sér en svo ákvað hún að þrífa förðunarburstana sína og þá gerðist kraftaverkið. 

View this post on Instagram

A post shared by CAMY (@camillarut)

Kann að gera vel við sig!

Snærós Sindradóttir fjölmiðlakona naut sín í Edinborg. 

Hélt upp á 6 ára afmæli!

Fanney Ingvarsdóttir hélt glæsilega afmælisveislu fyrir dóttur sína. 

Vill vera eins flott og mamma! 

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups fagnaði 60 afmæli móður sinnar og segist vona að hún sjálf verði eins glæsileg þegar hún verður á sama aldri.  

Lúxuslíf!

Hrefna Dan fór á Retreat hótel Bláa lónsins og elskaði það. 

View this post on Instagram

A post shared by HREFNA DAN (@hrefnadan)

Bakara-Nóra í Lundúnum!

Það gengur vel hjá Elenoru Rós Georgsdóttur en hún flutti til Lundúna þar sem hún starfar sem bakari. 

Fagnaði með ástinni!

Ástrós Rut Sigurðardóttir er stolt af unnustanum sem er orðinn rafvirki. 

Sjóðheit á Akureyri!

Leikkonan og áhrifavaldurinn, Kristín Pétursdóttir, átti ljúfar stundir á Akureyri.

Ástfangin á Balí!

Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, er staddur í töfrandi fríi ásamt unnustu sinni Telmu Fanney Magnúsdóttur á Balí.

View this post on Instagram

A post shared by JJ Julius Son (@julius_son)

Farðaði alvöru rokkstjörnur!

Förðunarfræðingurinn og hárstílistinn, Sigurveig Þórmundsdóttir, farðaði rokkstjörnur hljómsveitarinnar Måneskin fyrir tónleika í Kaupmannahöfn.

Vinkonur í 14 ár!

Vinkonurnar Rósa Sigurðardóttir og Alexandra Sig Nikulásdóttir fögnuðu 14 ára vináttu, en það var sameiginlegur áhugi þeirra á förðun sem leiddi þær saman.

Skvísa í Stokkhólmi!

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Valgeirsdóttir hefur það gott í sólinni í Stokkhólmi.

Allt í blóma!

Förðunarfræðingurinn og hlauparinn, Rakel María Hjaltadóttir, er í góðum málum í Þýskalandi.

Götulokanir og glamúr!

Skemmtikraftinum Sóla Hólm er margt til listanna lagt, en nú er hann orðinn fyrirsæta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál