Katrín Tanja komin á rándýran „draumabíl“

Parið er í skýjunum yfir kaupunum.
Parið er í skýjunum yfir kaupunum. Samsett mynd

Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir er komin á nýjan bíl, sannkallað tryllitæki. Bíllinn, sem er nýr úr kassanum, er engin smásmíði en um er að ræða svartan Defender frá Land Rover. Bíllinn er árgerð 2024.

Katrín Tanja birti skemmtilega myndaseríu af sér og sambýlismanni sínum, fyrrverandi ísknattleiksmanninum Brooks Laich, þar sem þau stilltu sér upp við hlið glæsikerrunnar. 

„Við keyptum draumabílinn okkar. Þriðja myndin í seríunni er þriggja ára gömul en hún er tekin þegar við fórum með gamla bílinn minn í viðgerð. Það var þá sem við kolféllum fyrir Defender. Ég tók mynd af Laich þegar hann settist upp í bílinn og hugsaði með mér: Einn daginn.

Frá því við fluttum til Coeur d'Alene höfum við samnýtt einn bíl. Mér líður núna eins og ég hafi fengið vængi. Ég er svo ánægð, þakklát og spennt fyrir öllum ævintýrunum sem ég á eftir að upplifa með ástinni minni,“ skrifaði Crossfit-stjarnan. 

Samkvæmt vefsíðu BL ehf. þá er ágætis verðmiði á bílnum, en hérlendis kostar jeppinn frá 15 milljónum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál