Margar stjörnur hafa sést nýlega með nýklippt og litað hár. Það gæti verið að vorið sem er að koma úti í heimi geri það að verkjum að þær vilji létta og lýsa hárið.
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian sást skarta stutt ljósu hári nýlega.
Leikkonan Kristen Stewart snoðaði á sér hárið og litaði það ljóst í leiðinni.
Fyrirsætan Cara Delevingne skellti sér í klippingu og lét lýsa á sér hárið töluvert.
Söngkonan Katy Perry fór í klippingu rétt eftir að hún hætti með Orlando Bloom.
Kylie Jennar lét lokkana fjúka. Spurning hvort hún eigi eftir að lita það ljóst eins og systir hennar Kim Kardashian gerði.