Með nýtt dress fyrir hvert tilefni í París

Katrín geislaði í París.
Katrín geislaði í París. mbl.is/AFP

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja af Cambridge voru í opinberri heimsókn í París á dögunum. Katrín vakti athygli fyrir fallegan fatnað og var með nýtt dress í töskunni fyrir hvert tilefni samkvæmt E! Online.

Katrín kann að velja fallegar kápur og hún mætti til Parísar á föstudaginn í fallegri grænni kápu frá Cethrine Walker. Græni liturinn varð eflaust fyrir valinu vegna þess að á föstudaginn var dagur heilags Patreks. 

Katrín í grænni kápu.
Katrín í grænni kápu. mbl.is/AFP

Þegar Katrín mætti í breska sendiráðið í París var hún klædd fallegum svörtum Alexander McQueen-kjól. 

Katrín er með fágaðan smekk.
Katrín er með fágaðan smekk. skjáskot/E! Online

Seinna um kvöldið voru allra augu á Katrínu þegar hún klæddist glæsilegum sérsniðnum síðkjól frá Jenny Peckham. 

Katríns í glæsilegum síðkjól.
Katríns í glæsilegum síðkjól. skjáskot/E! Online

Á öðrum degi heimsóknarinnar var Katrín klædd tweed-kjól frá Chanel. 

Hjónin voru glæsileg við Eiffel-turninn.
Hjónin voru glæsileg við Eiffel-turninn. mbl.is/AFP

Hún mætti síðan í fagurrauðri kápu frá Corolinu Herrera þegar Frakkland og Wales áttust við í ruðningi. Undir kápunni var hún í svörtum rúllukragabol.

Katrín í fallegri rauðri kápu.
Katrín í fallegri rauðri kápu. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál