Ofurkonulína frá H&M

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell verður aðalnúmerið í haustherferð sænska tískurisans H&M fyrir Fall fashion-línuna. 

Glamúrinn verur allsráðandi í þessari haustlínu og verður þemað „power dressing“. Vel sniðnir blazer-jakkar eru áberandi við þröng pils og kvenlegar skyrtur. Er þessu öllu blandað saman við grófar prjónapeysur, kjóla úr glansefni og fleira í þeim dúr. 

Í kynningarmyndbandi línunnar má sjá hina glæsilegu Naomi Campbell sem tekur okkur með út á næturlífið í Tókýó þar sem tískulegar týpur mála bæinn rauðan.

„Tókýó er klárlega ein af mínum uppáhaldsborgum. Í tökunum klæddist ég dökkri tvíhnepptri buxnadragt sem er án efa ein af mínum uppáhaldsflíkum úr haustlínunni. Ég myndi sjálf klæðast dragtinni á svipaðan hátt og ég var í myndbandinu, alveg hneppt upp en samt sést í smá húð svo það myndast skemmtilegt jafnvægi af kvenlega og karllæga stílnum,“ segir Campbell. 

Fall Fashion-línan verður fáanleg í verslunum frá og með 21. september næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál