Sarah Burton, listrænn stjórnandi Alexander McQueen, sá um að hanna brúðarkjól tennisstjörnunnar Serenu Williams. Williams giftist Reddit-stofnandanum Alexis Ohanian á fimmtudaginn og dugði ekkert minna en þrír kjólar fyrir brúðkaupið og veisluna.
Sarah Burton er vinsæl á meðal stjarnanna en hún hannaði meðal annars brúðarkjól Katrínar hertogaynju. Brúðarkjóllinn sem hún hannaði fyrir Williams var ævintýralegur, mikill með löngu slöri.
Í viðtali við Vogue segist Williams hafa flogið til London til þess að hitta Burton. Ferðin endaði með því að hún varð ástfangin af teikningu af kjól sem var eins og ekta dansleikjakjóll, andstæðan við það sem hún hafði ímyndað sér.
Kjóllinn frá Burton var ekki sá eini sem Williams klæddist en hún skipti yfir í léttari kjól frá Versace eftir að búið var að gefa þau saman. Donatella Versace sagði Vogue að það hefði tekið 1.500 klukkustundir að sauma kjólinn.
Williams skipti yfir í þriðja kjólinn, sem einnig var frá ítalska merkinu þegar brúðhjónin héldu út á dansgólfið. Kjóllinn var styttri en hinir tveir kjólarnir og því auðveldara fyrir Williams að sletta almennilega úr klaufunum á dansgólfinu.