Það eru margir sem taka upp krullujárnið þegar líða fer að lokum desember. Þrátt fyrir að það sé alltaf fallegt að vera með liði í hárinu er gaman að breyta til og þá kemur sleikt aftur sterkt inn. Sléttijárnið er besti vinurinn auk þess sem gott getur verið að nota gel og hársprey til að ná stjórn á hárinu.
Sleikt aftur hefur einhvern tímann þótt vera hallærislegt en eins og með allt þá er þetta allt spurning um útfærslur. Byrdie tók saman lista af nokkrum stjörnum sem hafa gert greiðsluna eldheita.
Hér er um nokkur dæmi að ræða af útfærslum af hárgreiðslum þar sem hárið er sleikt aftur en allar eiga þær það sameiginlegt að vera hátíðlegar. Þegar hárið er tekið aftur fær farðinn að njóta sín enda áramótin tilefni til þess að smella á sig flottum varalit og glimmeraugnskugga.