Harry Bretaprins og unnusta hans, Meghan Markle, heimsóttu Edinborg í dag. Meghan klæddi sig upp fyrir tilefnið og mætti í köflóttri kápu en Skotar eru þekktir fyrir köflótta munstrið eins og sást vel á mönnum og dýrum sem þau hittu.
Köflótta kápan er frá Burberry og kostar tæpa 3.000 dollara eða tæpar 300 þúsund íslenskar krónur. Að venju var Meghan í stílhreinum fatnaði og klæddist svörtum rúllukragabol og útvíðum buxum undir kápunni.
Meghan var stelpuleg með litla tösku yfir öxlina en taskan er frá skoska merkinu Strathberry og kostar um 40 þúsund krónur. Þetta er ekki eina taskan sem Meghan á frá skoska merkinu, hún var einnig með tösku frá merkinu í fyrstu opinberu heimsókn sinni með Harry í desember.