Katrín paraði saman grænt og grænt

Katrín hertogaynja í grænni kápu frá Jenny Peckham.
Katrín hertogaynja í grænni kápu frá Jenny Peckham. AFP

Katrín hertogaynja minnti á mintugrænan ís í grænni kápu og kjól í stíl í London í vikunni. Það styttist í að Katrín taki sér frí frá opinberum skyldum en hún og Vilhjálmur Bretaprins eiga von á sínu þriðja barni í næsta mánuði. 

Kápan var frá einu af eftirlætismerkjum Katrínar, Jenny Packham. Katrín hefur verið dugleg að endurnýta gamlan óléttuklæðnað en sérfræðingar í Bretlandi  vilja meina að græna kápan með slaufunni hafi verið ný. 

Katrín lét það ekki á sig fá að vera komin átta mánuði á leið og mætti í háhæluðum skóm frá Gianvito Rossi. 

Hertogaynjan virðist kunna vel við græna litinn þessa dagana. Um helgina mætti hún í dökkgrænni kápu frá Catherine Walker þar sem hún fagnaði degi heilags Patreks. 

Katrín hertogaynja.
Katrín hertogaynja. AFP
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja á degi heilags Patreks.
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja á degi heilags Patreks. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál