Notar tvo maskara en ekki einn

Kylie Jenner notar tvo mismunandi maskara.
Kylie Jenner notar tvo mismunandi maskara. AFP

Raunveruleikastjarnan og snyrtivöruframleiðandinn Kylie Jenner sýndi myndatökumanni Vouge förðunaraðferð sína á dögunum. Jenner er mikil áhugamanneskja um snyrtivörur og byrjaði snemma að mála sig. Hún segir að móðir sín hafi leyft sér að fara málaðri í skólann 11, 12 ára. 

Jenner byrjar á augnfarðanum áður hún setur á sig andlitsfarða. Hún notar ekki bara bursta í augnfarðann heldur líka setur líka á sig augnskugga með puttunum. Stjarnan er sérstaklega þekkt fyrir varaliti sína en hún notar varablýant til þess að varalita sig.

Eitt af því síðasta sem hún gerir er að setja á á sig maskara en hún notar tvær gerðir af maskörum. Svartan á efri augnhárin en brúnan á neðri augnhárin. Þetta gerir hún vegna þess að hún er ekki hrifin af maskara á neðri augnhárunum en fær smá lit á þau með brúnum maskara. 

Kylie Jennar varð snemma hrifin af snyrtivörum.
Kylie Jennar varð snemma hrifin af snyrtivörum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál