Leikkonan Halle Berry er 51 árs en hefur að undanförnu vakið athygli fyrir að bera aldurinn sérstaklega vel. Berry fann ekki leynilegan æskubrunn heldur drekkur beinaseyði auk þess sem hún hreyfir sig mikið og er á ketó-mataræðinu.
Í viðtali á dögunum upplýsti hún að fegrunarleyndarmálið væri beinaseyði. „Þú getur búið það til, þú getur farið til slátrarans og fengið gefins öll beinin sem er hent. Taktu beinin og sjóddu þau í allt að 24 klukkustundir og drekktu soðið. Það er klikkað hvað það er fullt af kollageni,“ sagði Berrry.