Við sögðum fréttir af því snemma í sumar að hlébarðamynstur yrði trend sumarsins. Það hefur svo sannarlega ræst úr því ef marka má helstu samfélagsmiðla. Hér eru hins vegar góðu fréttirnar, hlébarðamynstur verður enn þá heitt í haust.
Það skiptir ekki máli hvers konar flík það er, buxur, vesti, jakkar, kjólar; hlébarðamynstur er málið. Það er því um að gera að fara í helstu verslanir landsins, eða jafnvel netverslanir og kaupa sér nokkrar flíkur með hlébarðamynstri.