Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kris Jenner opnaði dyrnar að fataherbergi sínu á dögunum. Á meðan margir þurfa að láta einn fataskáp duga er Jenner með herbergi á stærð við tvöfalda stofu, eitt fyrir fötin og annað fyrir skóna.
Jenner afsakar fatamagnið með því að hún taki upp sjónvarpsþátt næstum því á hverjum degi og þurfi að geta haft val. Þrátt fyrir þetta mikla magn af fötum eru auðvitað íþróttagallarnir í uppáhaldi hjá Jenner og segir hún sér líða best í kósígallanum.
Fyrstu tvær mínúturnar af myndbandinu gefa góða sýn af hvað er að finna í þessu gríðarstóra fataherbergi Jenner. Sjón eru sögu ríkari.