Leikkonan Julia Roberts á sínar fyrirmyndir þegar kemur að tísku eins og svo margir aðrir. Roberts sem er þekkt fyrir að að fara frekar varlega þegar kemur að fatavali lítur þó ekki endilega upp til eldri kvenna sem hafa verið þekktar í áratugi fyrir klassískan klæðaburð.
Í viðtali við InStyle segist hin fimmtuga Roberts dreyma um að klæða sig eins og leikkonan Blake Lively. Lively er töluvert yngri en Óskarsverðlaunaleikkonan og var bara þriggja ára þegar Roberts sló í gegn í Pretty Woman.
Lively sem er ekki með stílista eins og svo margar Hollywood-stjörnur hefur alla tíð verið þekkt fyrir smekklegheit. Undafarna mánuði hefur hún reyndar vakið sérstaka athygli fyrir að klæðast buxnadrögtum.
Roberts segir stíl sinn hafa mótast snemma á tíunda áratugnum og eru góðar gallabuxur, bolur og stígvél eitthvað sem Roberts er mjög hrifin af.