Kvikmyndin Love Actually er ekki þekkt fyrir að veita tískuinnblástur en hatturinn sem Keira Knightley skartar í einu atriði myndarinnar er þó afar eftirminnilegur. Knightley greindi frá sögunni á bak við hattinn í viðtali á dögunum. Eiga einhverjir eftir að horfa á myndina með öðrum augum en vanalega þessi jólin.
Knightley var bara unglingur þegar hún lék nýgifta konu í myndinni og því ekki alveg laus við unglingabólurnar. Þegar hún mætti í tökur einn daginn var hún með svo stóra bólu á enninu að það var ekki hægt að gera neitt annað en að finna höfuðfat á leikkonuna þar sem bólan var svo stór og mikil.