Sandra Bullock ljóstraði upp leyndarmálinu á bak við unglegt útlit sitt á dögunum. Var leikkonan spurð út í það af hverju hún eldist ekki en hún virðist lítið hafa breyst síðustu 20 árin. Bullock reyndi ekki að þakka sólarvörn eða vatnsdrykkju.
„Veistu hversu marga klukkutíma í hárgreiðslu og förðun þetta tók? Tvo og hálfan klukkutíma,“ sagði Bullock í viðtali á ET. Hún sagði að fólk sæi sig bara þegar hún liti svona út við kynningarstörf fyrir kvikmyndir.
Leyndarmál Bullock er því ekki flóknara en að leggja mikla vinnu á sig í förðunarstólnum.
„Ég mun vinna með þetta útlit í allan dag og svo fer ég heim og fer í sturtu, og svo gerist þetta aftur klukkan átta í fyrramálið,“ sagði Bullock. „Ég er aldrei úti í hinum stóra heimi og mynduð nema ég líti svona út.“