Mætti í hræódýrum skóm

Lupita Nyong'o var í skóm af ódýrari gerðinni á Golden …
Lupita Nyong'o var í skóm af ódýrari gerðinni á Golden Globe. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Lupita Nyong'o sýndi fram á að skór þurfa ekki að kosta hundruð þúsunda til að sóma sér vel á rauða dreglinum. Nyong'o var líklega í ódýrustu skónum á Golden Globe-verðlaununum en hún var í skóm frá kanadíska skómerkinu Aldo. 

Vogue greinir frá því að skórnir hafi einungis kostað 45 Bandaríkjadali eða rúmlega fimm þúsund íslenskar krónur. Erfitt er að fá jafn ódýra skó á Íslandi en leikkonan er sögð hafa sýnt fram á að óþarfi sé að kaupa rándýra skó þegar fólk ætlar sér aðeins að nota þá einu sinni við fín tilefni á borð við árshátíðir sem eru skammt undan. 

Silfraðir skórnir pössuðu fullkomlega við bláan Calvin Klein-kjól sem Nyong'o klæddist á hátíðinni og virtist leikkonan hæstánægð með skóna. 

Lupita Nyong'o í silfruðu hælunum.
Lupita Nyong'o í silfruðu hælunum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál