Fanney Ingvarsdóttir bloggari og flugfreyja hefur hannað nýja fatalínu fyrir Moss sem seld er í Galleri 17.
„Loksins, loksins, LOKSINS get ég deilt því með ykkur sem ég hef verið að vinna að undanfarna mánuði. Síðasta vor, eða nánar tiltekið í maí í fyrra, var fyrsti undirbúningsfundur formlega haldinn svo ferlið er því orðið ansi langt og margir stórskemmtilegir mánuðir af vinnu að baki. Hingað til hefur þetta verið algjört „leyniverkefni“ og hef ég í allan þennan tíma haldið því fyrir sjálfa mig og mína nánustu. Undanfarna daga og vikur hefur verið meira en nóg að gera hjá mér enda er loksins komið að því að deila með ykkur gleðinni og útkomunni. Þetta litla (samt risastóra) leyniverkefni er sumsé samstarfsverkefni mitt við NTC sem samanstendur af nýrri fatalínu sem ég vann með Galleri 17, MOSS X FANNEY INGVARS. Þið hafið eflaust mörg hver tekið eftir smá „tease-i“ á samfélagsmiðlum undanfarna daga en ég hef verið að klæðast og birta myndir af mér í flíkum úr línunni. Það reyndist á endanum mjög erfitt því mér bárust óteljandi fyrirspurnir um flíkurnar og þótti mér mjög erfitt að geta ekki svarað ykkur með fullnægjandi svörum, þó að ég væri að sjálfsögðu óendanlega þakklát að finna fyrir áhuganum! Nú get ég loksins skýlt mér á bak við það en þessar flíkur tilheyra sumsé fatalínunni minni, MOSS X FANNEY INGVARS sem ég er ofsalega stolt af,“ segir Fanney Ingvarsdóttir á www.trendnet.is.
Þann 11. apríl verður línan kynnt í Galleri 17.
„Undanfarna daga hafa allar heimsins tilfinningar komið yfir mig en núna get ég ekki annað en brosað út að eyrum. Ég varð einfaldlega smá meyr af stolti þegar ég sá allar flíkurnar mínar hangandi saman á slá í fyrsta sinn í síðustu viku,“ segir hún.