Buxnadragt Elizu frá Hugo Boss

Eliza Reid vakti athygli í hvítu buxnadragtinni.
Eliza Reid vakti athygli í hvítu buxnadragtinni. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Eliza Reid, forsetafrú Íslands, var afar glæsileg í hvítri buxnadragt þegar varaforseti Bandaríkjanna, Mike Pence, og eiginkona hans heimsóttu Ísland í gær. Buxnadragtir hafa verið vinsælar undanfarin misseri og fékk Eliza sína í Hugo Boss. 

Buxnadragt Elizu er aðsniðin og jakkinn frekar stuttur með hvítum tölum. Jakkinn er tvíhnepptur og settu tölurnar fjórar svip á jakkann. 

Eliza var falleg í hvítu en varaforsetafrúin Bandaríska, Kar­en Pence, …
Eliza var falleg í hvítu en varaforsetafrúin Bandaríska, Kar­en Pence, valdi dökkt eins og Guðni forseti og Mike Pence. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Mikið var fjallað um hvort Eliza væri að senda pólitísk skilaboð með hvítu buxnadragtinni. Þeir sem fylgjast með tísku vita þó að buxnadragtir hafa verið mjög heitar undanfarin misseri og hvíti liturinn vinsæll. Í byrjun vikunnar mætti einmitt fatahönnuðurinn Victoria Beckham í hvítri tvíhnepptri buxnadragt á viðburð GQ.

Eitt er víst að hvort sem pólitík eða tíska réð för í fatavali Elizu þá var hún afar glæsileg. 

Eliza var í hvítu þrátt fyrir haustveðrið sem tók á …
Eliza var í hvítu þrátt fyrir haustveðrið sem tók á móti varaforsetahjónum Bandaríkjanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál