Frelsi er orðið sem lýsir Yves Saint Laurent best. Monsieur Yves Saint Laurent, stofnandi Yves Saint Laurent-tískuhússins, talaði um að konur ættu að vera frjálsar og það væri lífsstíll hverrar og einnar að geta sagt nei þegar það ætti við.

Hann sagði að konur ættu að hafa frelsi til að sýna sig í réttu ljósi. Það væri ekki bara að gera allt upp á tíu heldur líka að lifa ástríðufullu lífi og að láta drauma sína rætast. Hann sagði að frelsi væri hugarástand og að konur ættu ekki að gera neinar málamiðlanir. Í dag er frelsi alveg jafnmikilvægt fyrir nútímakonuna.
Frelsið er í forgrunni í nýjasta ilmi Yves Saint Laurent, en ilmurinn heitir Freedom, eða frelsi. Um er að ræða heillandi blómailm sem dansar á línunni milli kvenleika og karlmennsku. Sem er algerlega í takt við nútímann.