Tónlistarkonan Pink sagði í þræði á Instagram að hún ætlaði að leyfa sér að eldast eðlilega og ætlar ekki í neinar lýtaaðgerðir á komandi árum.
Pink varð fertug á síðasta ári og deildi hugleiðingum sínum um lýtaaðgerðir á þræðinum. Þar segir hún í bréfi til sjálfrar sín að hún hafi oft íhugað að breyta útliti sínu. Síðan hafi hún séð þætti þar sem hún hefði viljað sjá tilfinningar fólks en andlit þess hefði ekki hreyfst. Hún segist ekki skilja þetta, hún vilji að börn sín viti hvenær hún er reið.
„Ég er heppin því ég hef í rauninni aldrei þurft að reiða mig á útlitið. Ég er búin að ákveða að hæfileikar mínir og sérstaða eru mun mikilvægari en andlit mitt,“ skrifar Pink.
Tónlistarkonan Kelly Clarkson virðist ætla að hoppa á sama vagn og Pink og ætlar heldur ekki að fara í lýtaaðgerð.