Það er enginn maður með mönnum nema að búa til nýjar áskoranir á samfélagsmiðlum og taka þátt í áskorunum. Leikarinn glysgjarni Billy Porter er einn af þeirra sem hefur skorað á fólk að taka þátt í tískuáskorun nú þegar margir sitja heima í einangrun vegna kórónuveirufaraldursins.
Porter er þekktur fyrir að ögra hinum hefðbundnum staðalímyndum með klæðnaði sínum. Hann skoraði á fólk að reyna að leika eftir klæðnað sinn frá Met Gala-viðburðinum frá því í fyrra. Porter klæddist eins og sólarguð en fötin voru frá The Blonds. Var hann meðal annars með stóra vængi sem fönguðu athygli allra þegar hann breiddi úr þeim. Áskorun Porter var þó ekki að líkja nákvæmlega eftir stórfenglegum klæðnaði Porter heldur nýta það sem fólk finnur til heima hjá sér. Fólk tekur þátt með því að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum og merkja með myllumerkinu #BillyPorterFashionChallenge.