Á tímapunkti sem þessum þar sem flestir eru í barnaorkunni sinni vegna kórónuveirunnar þurfum við að gera það besta úr hlutunum. Við þurfum að verðlauna okkur og hafa helst einhverja gulrót á hverjum degi til að hlakka til að takast á við daginn. Ef það er eitthvað sem gæti lífgað upp á kalda desembermorgna í kulda og dimmu er það snyrtivörudagatal.
Franska snyrtivörumerkið Guinot er þekkt fyrir andlitsmeðferðir sínar sem framkvæmdar eru á snyrtistofum en auk þess er hægt að kaupa vörurnar ef fólk vill hugsa vel um húðina. Nú er Guinot komið með sitt eigið snyrtivörudagatal sem er fullt af huggulegum vörum sem munu gera lífið skemmtilegra í desember.
Guinot á sína eigin rannsóknarstofu en þar vinnur fjöldi vísindamanna að rannsóknum og þróun meðferða sem bæta árangur og auka vellíðan. Eftir 30 ára reynslu á snyrtistofum er Guinot með það á hreinu hvað virkar. En hvað skyldi jóladagatalið hafa að geyma? Hér er upptalning á nokkrum vörum sem prýða dagatalið.
24 stunda krem fyrir allar húðgerðir. Kremið er doktorsverkefni dr. Mondins í lyfjafræði, þróað á brunadeild háskólasjúkrahúss í París. Það hefur mjög græðandi eiginleika þar sem það lengir líftíma frumunnar með þeim vítamínum og öðrum innihaldsefnum sem það færir henni. Longue Vie Cellulaire er fyrir allar húðgerðir, notkun þess gefur húðinni fallegri blæ og áferð. Um er að ræða krem sem er gott fyrir húð sem hefur orðið fyrir skemmdum. Longue Vie Cellulaire hentar bæði sem viðhaldskrem með uppbyggjandi og stinnandi línu og sem alhliða vernd gegn öldrunarþáttum húðar.
Tveggja þátta augnfarðahreinsir sem auðveldlega leysir upp bæði vatns- og olíukenndan augnfarða á skjótan og öruggan hátt.
Mildur sápuhreinsir í kremformi sem vinna þarf upp í löður með fingrum. Borið á raka húð og þvegið vel af í lokin. Góður kostur fyrir þá sem vilja hreinsa andlit með sápu og vatni. Hreinsar vel húð án þess að valda herpingi. Ný formúla kom í september 2007 þar sem engin paraben eru notuð og hentar því allra viðkvæmustu húðgerðum.
Kornadjúphreinsir fyrir allar húðgerðir sem inniheldur tvenns konar örsmá korn sem fjarlægja á auðveldan hátt dauðar hyrnisfrumur af yfirborðinu en hvetja jafnframt nýmundun í neðri húðlögum.
Mjög mildur djúphreinsir með AH-sýrum í gelformi sem er ætlaður öllum húðgerðum. Hann djúphreinsar húðina á auðveldan og fljótlegan hátt án ertingar á yfirborðinu og gefur henni jafnframt næringu og raka. Hentar viðkvæmum svæðum eins og vörum, höndum og bringu. Gelið er borið á andlit og háls og unnið strax upp með léttum hreyfingum þar til það verður að olíu. Húðin þvegin með hreinu vatni.
24 stunda rakakrem með lípósóm sem flytja meiri og betri rakagefandi efni til dýpri húðlaga og losa rakann á náttúrulegan hátt til húðfrumna. Virku efnin rakametta húðina svo hún viðheldur eða endurnýjar rakajafnvægi sitt. Áferð kremanna er létt fyrir allar húðgerðir en mýkri og kremkenndari fyrir þurra húð. Kremið er borið á hreina húð kvölds og morgna.
24 stunda rakakrem fyrir þurra húð sem hjálpar til við að viðhalda rakajafnvægi. Mýkir og sléttir fínar línur sem myndast vegna þurrks. Berist daglega á hreina húð, kvölds og morgna.
Rakamaski sem dregur úr þreytumerkjum húðar. Berið þykkt lag á húð andlits og háls. Maskinn er tekinn af með bréfþurrku eftir 10 mínútur og húðin hreinsuð með andlitsvatni á eftir. Húðin fær fallegri áferð, verður mýkri og frísklegri.
Fjölhreinsivatn fyrir augu og andlit sem er jafnframt mjög árangursríkt. Húðin verður hrein án ertingar. Inniheldur fjölmarga litla dropa sem ná að hreinsa húðina betur en fjölhreinsar hafa áður gert. Hreinsar vel vatnsheldar förðunarvörur. Hentar vel sem fyrsti hreinsir, í fríið, sumarbústaðinn og ekki síður sem morgunhreinsir. Húðin er strokin létt með bómull vættri í fjölhreinsinum. Engin þörf á að hreinsa með vatni á eftir. Inniheldur engin paraben, tilbúin litarefni né alkóhól eða sápulausnir. Hentar öllum húðgerðum.
HÉR getur þú keypt dagatalið.