Segist ekki hafa farið í lýtaaðgerð

Aðdáendum Kelly Osbourne fannst hún mjög breytt á myndinni til …
Aðdáendum Kelly Osbourne fannst hún mjög breytt á myndinni til hægri og veltu fyrir sér hvort hún hefði farið í lýtaaðgerð. Osbourne segir svo ekki. Samsett mynd

Kelly Osbourne, sem er hvað þekktust fyrir að hafa verið í raunveruleikaþáttunum The Osbournes, segist ekki hafa farið í meiriháttar lýtaaðgerð. Osbourne birti mynd af sér á samfélagsmiðlum sem mörgum finnst ólík henni. 

„Mig langar bara að tala um efni sem þið hafið mörg verið að velta fyrir ykkur, af því ég er alltaf mjög heiðarleg og kem hreint til dyranna um það sem ég hef gert við líkama minn, og ég er sú sem ég er, og ég hef ekki farið í lýtaaðgerð,“ sagði Obsourne í myndbandi á Instagram.

Kelly Osbourne.
Kelly Osbourne. skjáskot/Instagram

Osbourne sagðist aldrei hafa farið í meiriháttar aðgerð á andlitinu, aðeins fengið sér smá fyllingu í varir, kjálkann og í ennið. 

Osbourne hefur, eins og hún segir, verið mjög opin á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Nýlega opnaði sig hún um það að hún hefði fallið og byrjað að drekka áfengi aftur. Á síðasta ári opnaði hún sig einnig um að hún hefði farið í magaermaraðgerð til að hjálpa sér að grennast. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál