Það var eitthvað verulega sérstakt sem gerðist í lífi Margaret Qualley á ferðalagi um París og London með systkinum sínum, þeim Justin og Rainey Qualley, í árslok ársins 2019. Þau voru öll að ganga í gegnum sambandsslit og gátu hvorki sofið né borðað eðlilega, en ákváðu að fá sér ís saman, fara út að ganga, skoða söfn og fleira til að ná ástarþráhyggjunni úr huga sér.
„Við hötuðum öll okkur sjálf,“ sagði Margaret Qualley en um leið og hún tók eftir þessu bað hún bróður sinn og systur að standa með sér í því að hætta að brjóta sig svona niður. Að sleppa tökunum og bara sjá hvað gerðist í lífinu með því að treysta því sem fram undan væri.
Það sem einkennir Margaret Qualley sem leikkonu er einmitt þetta æðruleysi og tilgerðarleysi. Það heillaði marga áhorfendur sjónvarpsþáttaraðarinnar Maid á Netflix þar sem Qualley fór með hlutverk Alex, 25 ára einstæðrar móður, sem fótar sig í lífinu eftir ofbeldissamband.
Það sama má segja um leikkonuna í auglýsingaherferð Chanel, þar sem hún tekur hátískuna á annað plan, án tilgerðar og hroka.
„Ferill í mínum bransa er ekki langur. Mig langar að hafa gaman á meðan ég er að vinna. Þess vegna reyni ég að sleppa tökunum, sjá það góða og skemmtilega við lífið og bara treysta því að allt fari vel.“
Qualley er lítið fyrir að tala um ástalíf sitt, þótt flestir viti að hún hætti með leikaranum Shia LaBeouf í upphafi árs eftir stutt samband en fyrrverandi kærasta LaBeoufs, tónlistarkonan FKA Twigs, kærði hann í desember ári áður fyrir kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi.
„Ég einbeiti mér að vinnunni núna og skemmti mér vel. Ég reyni að tengjast innsæi mínu og vera á staðnum í öllu því sem ég geri.“
Qualley er stödd í Panama, þar sem faðir hennar býr, við upptökur á kvikmyndinni The Stars at Noon, þar sem hún leikur aðalhlutverkið á móti leikaranum Joe Alwyn í rómantískri mynd sem fjallar um samband viðskiptamanns við blaðamann sem fella hugi saman á hættulegum slóðum.