Bleiki kjóllinn sem tónlistarkonan Madonna klæddist í myndbandinu við lagið Material Girl er falur fyrir rétt verð. Kjóllinn ásamt fleiri munum úr tónlistarsögunni verða seldir á uppboði í maí.
Bleiki satínkjóllinn gæti farið á 150 þúsund pund að því fram kemur á vef Daily Mail eða rúmlega 25 milljónir íslenskra króna. Einnig verður boðin upp hvítur loðfeldur og óperuhanskar. Bleiki kjóllinn er eitt eftirminnilegasti kjóllinn sem poppdrottningin Madonna hefur klæðst.
Myndbandið við lagið Material Girl kom út árið 1985. Hugmyndin að bleika kjólnum í myndabandinu kom frá kjól sem leikkonan Marilyn Monroe í myndinni Gentlemen Prefer Blondes árið 1953.
Á uppboðinu er einnig til sölu gítar af tegundinni Fender Mustang, sem Kurt Cobain notaði í myndbandinu við lag Nirvana, Smells Like Teen Spirit.