Óhrædd og ómáluð í nýju myndbandi

Kris Jenner segir ekki hlaupið að því að skipta um …
Kris Jenner segir ekki hlaupið að því að skipta um húðrútínu á sínum aldri.

Umboðsmaðurinn og raunveruleikastjarnan Kris Jenner var ekki feimin við að sýna andlit sitt ómálað í myndbandi á Instagram á dögunum. Í myndbandinu sýndi Jenner frá því hvaða vörur úr húðvörulínu dóttur sinnar, Kim Kardashian, hún notar á kvöldin.

Jenner er 66 ára gömul og segir að það sé ekki einfalt fyrir konur á þessum aldri að skipta um húðrútínu en að hún hafi nú fundið sér vörur úr línu dótturinnar sem virka fyrir hana. 

Jenner notar hreinsi, skrúbb, tóner, hýalúronsýru, C-vítamín serum, andlitskrem, næturolíu og augnkrem úr línunni sem heitir SKKN by Kim. Hýalúronsýruna og andlitskremið passar hún að setja niður á hálsinn og bringuna. 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál