Mætti í 24 ára gömlu pilsi á frumsýninguna

Calista Flockhart mætti í 24 ára gömlu Ralph Lauren pilsi …
Calista Flockhart mætti í 24 ára gömlu Ralph Lauren pilsi á frumsýningu Indiana Jones. Samsett mynd

Leikkonan Calista Flockhart mætti á frumsýningu Indiana Jones and the Dial of Destiny í pilsi sem margir kannast eflaust við. Leikkonan klæddist gula Ralph Lauren pilsinu fyrst árið 1999 á Emmy–verðlaunahátíðinni þegar hún var tilnefnd fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni Ally McBeal og er flíkin því 24 ára gömul. 

Flockhart, 54 ára, var stórglæsileg á rauða dreglinum í Los Angeles, en hún var mætt til þess að fagna eiginmanni sínum, Harrison Ford, sem leikur sjálfan Indiana Jones, í tilefni af frumsýningu á fimmtu og allavega síðustu Indiana Jones–myndinni sem Ford fer með titilhlutverkið í.

Í þetta sinn klæddist leikkonan svörtum toppi við gula pilsið, en árið 1999 vakti hún mikla athygli fyrir að para pilsið við hvíta herraskyrtu sem hún batt saman í mittið. 

Flockhart og Ford gengu í hjónaband hinn 15. júní árið 2010 og fagna því 13 ára brúðkaupsafmæli sínu í ár. Hjónin eiga einn son, Liam, 22 ára, en Flockhart ættleiddi drenginn árið 2001, einu ári áður en hún kynntist verðandi eiginmanni sínum. Ford ættleiddi drenginn stuttu eftir að þau hófu samband. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál