Guðmundur kominn til Þróttara

Guðmundur Friðriksson, til vinstri, í leik með Breiðabliki gegn Keflavík.
Guðmundur Friðriksson, til vinstri, í leik með Breiðabliki gegn Keflavík. Ljósmynd/Víkurfréttir

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Friðriksson er genginn í raðir Þróttar Reykjavíkur frá Breiðabliki en félögin hafa náð samkomulagi um félagaskiptin að því er fram kemur á vef stuðningsmanna félagsins, blikar.is.

Guðmundur er 24 ára gamall bakvörður sem lék 10 leiki með Blikum í Pepsi-deildinni í fyrra. Hann er ekki alveg ókunnugur liði Þróttar en hann var í láni hjá liðinu hluta tímabilsins 2016 og spilaði 9 leiki með liðinu í Inkasso-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert