Boðið til æfinga hjá Benfica

Mikael Egill Ellertsson.
Mikael Egill Ellertsson. Ljósmynd/Fram

Portúgalska Benfica hefur boðið hinum 16 ára Mikael Agli Ellertssyni að koma til æfinga í knattspyrnuakademíu félagsins í Lissabon. Þetta kemur fram á vef Fram.

Á vef Fram segir:

Að sögn Pedro Ferreira, yfirmanns hjá Benfica, er þetta í fyrsta skipti sem ungum íslenskum knattspyrnumanni er boðið til æfinga hjá félaginu. Þetta boð kemur í framhaldi af heimsókn fulltrúa Fram til Benfica á síðasta ári.

Í þeirri ferð var starfsemi Fram kynnt fyrir forráðamönnum Benfica en eins og kunnugt er þá er Pedro Hipolito, þjálfari Fram, fyrrverandi leikmaður félagsins og leikmaður úr yngri landsliðum Portúgals.

Í framhaldi af kynningu Benfica á sínu ungmennastarfi hefur Fram sent upplýsingar um unga leikmenn til yfirmanna knattspyrnumála hjá Benfica sem síðan hafa sent njósnara til að fylgjast með leikjum Fram í vetur. Mikael hefur vakið verðskuldaða athygli í undanförnum leikjum enda einn yngsti leikmaður í sögu Fram til að spila opinbera leiki með meistaraflokki félagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert