Hans Viktor framlengdi við Fjölni

Hans Viktor Guðmundsson verður áfram í herbúðum Fjölnis.
Hans Viktor Guðmundsson verður áfram í herbúðum Fjölnis. mbl/Arnþór Birkisson

Knattspyrnumaðurinn Hans Viktor Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Fjölni út keppnistímabilið 2021. 

Hans Viktor er uppalinn Fjölnismaður og spilaði hann með öllum yngri flokkum félagsins. Hann á 63 leiki að baki í efstu deild með Fjölni og 12 leiki með U21 árs landsliði Íslands.

Varnarmaðurinn lék 18 leiki með Fjölni á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark. Hans Viktor gat hins vegar ekki komið í veg fyrir fall Fjölnis úr efstu deild og mun hann taka slaginn með uppeldisfélaginu í B-deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert