Berglind að glíma við meiðsli

Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur skorað 4 mörk í Pepsi Max-deildinni …
Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur skorað 4 mörk í Pepsi Max-deildinni í sumar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Berglind Björg Þorvaldsdóttir, landsliðsframherji í knattspyrnu, meiddist í seinni vináttuleik Íslands og Finnlands í Finnlandi á mánudag. Berglind meiddist í mjöðm og er óvíst hve alvarleg meiðslin eru.

Hún segir þó ljóst að hún komi ekki til með að spila með Breiðabliki gegn HK/Víkingi í Pepsi Max-deildinni á mánudaginn. Blikar eru í öðru sæti deildarinnar með 18 stig eða fullt hús stiga eftir fyrstu sex umferðirnar.

Berglind Björg hefur byrjað alla sex leiki Breiðabliks á tímabilinu þar sem hún hefur skorað 4 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert