Miðasalan hefst í næstu viku

Næsta miðvikudag verður mánuður í Rúmeníuleikinn og þá byrjar miðasalan.
Næsta miðvikudag verður mánuður í Rúmeníuleikinn og þá byrjar miðasalan. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnusamband Íslands tilkynnti í dag að miðasala á leik Íslands og Rúmeníu í umspilinu um sæti á EM karla 2020, sem fram fer á Laugardalsvellinum 26. mars, og aðra landsleiki ársins hæfist á hádegi miðvikudaginn 26. febrúar og yrði skipt í þrennt.

Fyrst er miðasala fyrir þá sem keyptu ársmiða fyrir undankeppni EM 2020 og hún hefst kl. 12 þann 26. febrúar.

Þá kemur miðasala fyrir þá sem keyptu haustmiða fyrir undankeppni EM 2020 og hún hefst kl. 12 föstudaginn 28. febrúar.

Loks hefst almenn miðasala mánudaginn 2. mars klukkan 12.

Sjá frétt KSÍ. (bæði fréttin hér að ofan og frétt KSÍ hafa verið uppfærðar þar sem misskilnings gætti vegna framsetningar hennar).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert