Áhorfendatakmarkanir gilda ekki um börn

Íslandsmót karla hefst með leik Vals og KR á Hlíðarenda …
Íslandsmót karla hefst með leik Vals og KR á Hlíðarenda 13. júní. mbl.is//Hari

Börn fædd 2005 og síðar verða ekki talin með í hámarksfjölda áhorfenda á knattspyrnuleiki í sumar en þetta staðfestu heilbrigðisyfirvöld við KSÍ í dag. Eins og staðan er í dag verður hámarsfjöldi á knattspyrnuleiki í sumar 200 manns vegna kórónuveirufaraldursins.

Íslandsmótið hefst þann 12. júní næstkomandi með leik Vals og KR í úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildinni. Þá hefst bikarkeppnin, Mjólkurbikarinn þann 5. júní næstkomandi. Í tilkynningu heilbrigðisyfirvalda kemur einnig fram að gæta þurfi að tveggja metra bili milli þeirra hólfa sem eru sett upp á völlunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert