Daninn farinn frá KR

Tobias Thomsen hefur leikið sinn síðasta leik með KR.
Tobias Thomsen hefur leikið sinn síðasta leik með KR. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Danski knattspyrnumaðurinn Tobias Thomsen hefur yfirgefið herbúðir KR og haldið heim á leið. Mun hann leika með B-deildarliði í Danmörku á næstu leiktíð. KR staðfesti tíðindin á Instagram-síðu sinni í dag. 

Sagði Thomsen við  danska fjölmiðla á dögunum að hugurinn leitaði heim, en tímabilið í dönsku B-deildinni fer af stað 13. september. 

Thomsen hefur leikið hér á landi frá árinu 2017. Lék hann með KR í eitt sumar áður en leiðin lá til Vals og svo aftur KR árið eftir. Hefur Thomsen skorað 18 mörk í 63 leikjum í efstu deild hér á landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert