Framlengir um þrjú ár í Breiðholtinu

Sigurður Heiðar Höskuldsson og Oscar Clausen.
Sigurður Heiðar Höskuldsson og Oscar Clausen. Ljósmynd/Leiknir

Knattspyrnuþjálfarinn Sigurður Heiðar Höskuldsson hafur framlengt samning sinn við Leikni Reykjavík til ársins 2023. Tók hann við sem aðalþjálfari meistaraflokks Leiknis síðasta sumar, en hann var áður aðstoðarþjálfari Stefáns Gíslasonar sem hætti með liðið til að taka við Lommel í Belgíu. 

Leiknir hafnaði í þriðja sæti 1. deildarinnar í fyrra og er sem stendur í harðri baráttu um sæti í efstu deild, en liðið er í öðru sæti með 33 stig, einu stigi frá toppliði Keflavíkur og með jafnmörg stig og Fram í þriðja sæti. 

„Siggi Höskulds hefur náð frábærum árangri hjá félaginu og ljóst að hárrétt ákvörðun var að setja traustið á hann. Siggi er að okkar mati einn mest spennandi þjálfari landsins og mikið gleðiefni að hann geri nýjan samning. Leiknisliðið hefur spilað stórskemmtilegan fótbolta undir hans stjórn og hann vinnur ákaflega vel með ungum leikmönnum,” er haft eftir Óskari Clausen formanni Leiknis á heimasíðu félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert