Leik Breiðabliks og ÍBV sem átti að fara fram í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli klukkan 14 hefur verið frestað um sólarhring þar sem leikmenn ÍBV komust ekki til lands vegna veðurs.
Fer leikurinn þess í stað fram á morgun, sunnudag klukkan 14. Fer leikur Þróttar og ÍBV í Lengjudeild karla í fótbolta fram klukkan 14 og þá fara fram tveir handknattleiksleikir á milli Vals og ÍBV síðar í dag í Vestmannaeyjum.
ATH leik frestað! Í dag átti að fara fram leikur Breiðabliks og ÍBV í Pepsi max deild kvenna. Vegna veðurs kemst ÍBV ekki til lands. Leiknum hefur því verið frestað til sunnudags og fer fram kl.14:00.
Posted by Knattspyrnudeild Breiðabliks on Saturday, 26 September 2020