Áfram með FH þrátt fyrir fall

Guðni Eiríksson
Guðni Eiríksson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðni Eiríksson mun halda áfram að þjálfa meistaraflokk kvenna hjá FH þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr Pepsi Max-deildinni í fótbolta á síðustu leiktíð.

FH féll úr deildinni ásamt KR þegar tímabilið var flautað af en liðið var í næstneðsta sæti með 16 stig eftir 16 leiki.

Fréttatilkynning FH:

Guðni Eiríksson hefur verið endurráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH.

Guðni tók við liðinu haustið 2018 og undir hans stjórn endaði liðið í öðru sæti Inkasso-deildarinnar sumarið 2019 og komst þar með aftur upp í Pepsi Max-deildina. Þegar keppni var hætt þann 30. október sl. vegna kórónuveirufaraldursins voru tvær umferðir eftir í Pepsi Max-deild kvenna. FH var á þeim tímapunkti annað tveggja liða í fallsæti með 16 stig.

Það er skýrt markmið FH að eiga lið í efstu deild kvenna og við ætlum að endurheimta sætið í Pepsi Max-deildinni eins fljótt og auðið er. Guðni hefur átt langt og farsælt starf fyrir FH og við hlökkum til áframhaldandi starfs með honum þar sem markmiðið er að FH verði leiðandi félag í kvennaknattspyrnunni á Íslandi á komandi árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert