KA og Leiknir úr Reykjavík mæast í 3. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar á miðvikudaginn kemur en leikurinn fer fram á Dalvíkurvelli á Dalvík.
Til stóð að leikurinn myndi fara fram á Greifavelli á Akureyri en völlurinn er ekki tilbúinn fyrir leikinn og lítur ekki nægilega vel út.
Akureyringar óskuðu því eftir því við nágranna sína á Dalvík að fá að spila leikinn þar en á Dalvík er notast við gervigrasvöll.