Áfram í Fossvoginum

John Andrews stýrir kvennaliði Víkinga næstu tvö tímabilin.
John Andrews stýrir kvennaliði Víkinga næstu tvö tímabilin. Ljósmynd/Víkingur Reykjavík

Knattspyrnuþjálfarinn John Andrews hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking úr Reykjavík um að stýra kvennaliði félagsins næstu tímabil.

Samningurinn rennur út haustið 2023 en hann tók við þjálfun liðsins haustið 2019 og hafnaði liðið í 4. sæti 1. deildarinnar, Lengjudeildarinnar, á nýliðinni leiktíð.

Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir mikilli ánægju með framlengingu samnings við John og er full tilhlökkunar fyrir áframhaldandi uppbyggingu,“ segir í tilkynningu félagsins.

„Undanfarin ár hefur aðstaða til æfinga batnað til muna í Víkinni og telur stjórn deildarinnar félagið vera á góðum stað er varðar alla umgjörð og aðbúnað,“ segir ennfremur í tilkynningu Víkinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert