Klara mætt aftur til starfa hjá KSÍ

Klara Bjartmarz er mætt til starfa hjá KSÍ á nýjan …
Klara Bjartmarz er mætt til starfa hjá KSÍ á nýjan leik. mbl.is/Sigurður Unnar

Klara Bjartmarz er komin úr leyfi og tekin við starfi sínu sem framkvæmdastjóri KSÍ, Knattspyrnusambands Íslands, á nýjan leik. Fréttablaðið greindi frá í kvöld.

Klara fór í leyfi frá störfum þann 1. september síðastliðinn í kjölfar þess að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, og stjórn sambandsins sagði af sér.

KSí varð fyrir mikilli gagn­rýni fyr­ir þögg­un og meðvirkni með gerend­um inn­an sam­bands­ins.

Birkir Sveinsson hefur gengt starfi framkvæmdastjóra síðustu vikur í fjarveru Klöru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert