Sakar fyrrverandi stjórnarmann KSÍ um ósannindi

Magnús Gylfason, Ragnar Sigurðsson og Guðni Bergsson fara yfir málin …
Magnús Gylfason, Ragnar Sigurðsson og Guðni Bergsson fara yfir málin á landsliðsæfingu íslenska karlalandsliðsins í september árið 2019. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrrverandi eiginkona Ragnars Sigurðssonar, landsliðsmanns í knattspyrnu, segir Magnús Gylfason, fyrrverandi stjórnarmann hjá KSÍ, fara með rangt mál í skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ sem var opinberuð í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í gær.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Magnús hafi hitt hana og Ragnar, sem er kallaður A í skýrslu úttektarnefndarinnar, á kaffihúsi daginn eftir að lögreglan var kölluð að heimili þeirra vegna gruns um heimilisofbeldi.

„Magnús Gylfason, sem árið 2016 sat í landsliðsnefnd A-landsliðs karla en var þá hvorki starfsmaður KSÍ né í stjórn sambandsins, greindi úttektarnefndinni frá því að hann hefði hitt A og eiginkonu hans á kaffihúsi daginn eftir að lögregla var kölluð til,“ segir í skýrslu nefndarinnar.

„A hefði þá greint honum frá því sem hefði gerst um nóttina. Ekkert hefði bent til þess á þeim fundi að eiginkona A hefði sætt ofbeldi eða að hún hygðist leggja fram kæru á hendur A,“ segir enn fremur í skýrslunni.

Fyrrverand eiginkona Ragnars Sigurðssonar segir Magnús Gylfason fara með rangt …
Fyrrverand eiginkona Ragnars Sigurðssonar segir Magnús Gylfason fara með rangt mál í skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gat ekki dregið ályktanir um hennar líðan

ÍSÍ sendi fjölmiðlum tölvupóst í dag þar sem kemur fram að skýrslan hafi nú verið uppfærð þar sem Magnús hafi farið með rangt mál í skýrslunni.

„Fyrrverandi eiginkona A í máli sem fjallað er um í skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ sem birtist í gær kveður rangt sem Magnús Gylfason segir um að hafa hitt hana og þáverandi eiginmann hennar á kaffihúsi daginn eftir að lögregla var kölluð að dvalarstað þeirra vegna grunsemda um heimilisofbeldi,“ segir í tilkynningu ÍSÍ.

„Hún hafi ekki hitt Magnús og A á kaffihúsi þennan dag né nokkurn annan og hún geti bent á fleiri en eitt vitni því til staðfestingar. Líðan hennar hafi heldur ekki verið með þeim hætti að hún væri að hitta neinn á kaffihúsi daginn eftir og Magnús hafi engar forsendur haft til að draga ályktanir um hennar líðan. Þá hafi hún heldur ekki hitt A næstu daga.

Í samræmi við þær upplýsingar sem fyrrverandi eiginkona A hefur veitt nefndinni er skýrsla úttektarnefndarinnar uppfærð að þessu leyti á bls. 45,“ segir enn fremur í tilkynningu ÍSÍ.

Úttektarnefnd ÍSÍ kynnti niðurstöður úr skoðun á viðbrögðum og málsmeðferð …
Úttektarnefnd ÍSÍ kynnti niðurstöður úr skoðun á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisafbrotamála í höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardal í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert